Libby´s rekur sögu sína aftur til ársins 1869 þegar Libby, McNeill & Libby var stofnað í Chicago í Bandaríkjunum. Varð fyrirtækið m.a. eitt af brautryðjendum á framleiðslu og sölu á vörum í niðursuðudósum.
Libby´s er eitt það vörumerki sem hefur fylgt Nathan & Olsen hvað lengst en saga Libby´s tómatsósunnar á Íslandi er nánast samofin rúmlega 100 ára sögu fyrirtækisins. Eðli málsins samkvæmt hefur verið minnt á gæði Libby´s með ýmsum hætti í gegnum tíðina, með miseftirminnilegu móti og með skilaboðum sem eldast sömuleiðis misvel.
En niðurstaðan er samt sú, að Libby´s tómatsósa mun halda áfram að rata á matarborð Íslendinga um ókomna tíð.